27apríl

Gleðilegt sumar folks!

jæja sumarið er komið samkvæmt dagatalinu og þá er best að taka fram úlpur, húfur, vettlinga og lopapeysurnar svo maður sé nú tilbúinn að taka á móti því.. Ekki hægt að segja annað en það sé skítakuldi núna þrátt fyrir snilldarveður að undaförnu.. ætla nú ekki að vera í neinni bloggkeppni við Sigga Storm  sem  á víst að vera veðurpimp Íslands. Ég persónulega treysti veðurfréttunum á gömlu góðu Rúv miklu betur og sömu sögu má segja um fréttatímann sem er miklu áreiðanlegri á Rúv heldur en nokkru sinni á stöð 2. Einnig er það mikið fagnaðarefni að Evrópumótið í knattspyrnuleikni verður sýnt á ríkisstöðinni en ekki á stöð2 sport2. Alveg rólegir á nafni á sjónvarpsstöð.

Heyrst hefur að.....


  • Að fara á tónleika með Dr. Spock sé algjör snilld
  • Að undirritaður hafi sést síðustu vikur með trefil á vappi og sé þarmeð gengin  í háskóla. það á ekki við rök að styðjast. ástæðan fyrir því er hálsbólga.
  • Að lögreglumenn þessa lands séu búnir að glata því litla áliti sem fólk hafi á þeim.
  • að partýið á ytri-vík um síðustu helgi hafi verið djöfull gott. þó svo flestallir hafi verið komnir í vígahug undir restina
  • Gústi var kosinn gleðigjafi kvöldsins en verðlaunin voru í boði tequila.
  • Næstu helgi mun verða óvissuferð hjá Byko. Partýið verður í garðinum hjá þér
  • læra á trommur sé geðveikt gaman
  • það sé ekki eins gaman fyrir nágrannana sem virðast ekki kunna að meta þungan bassatrommuslátt fyrir svefninn
  • Að trommara og bassaleikara vantar æfingahúsnæði..... Anyone?
  • Að Egill í silfri egils sé að auglýsa eftir háls?
  • Að ef þið eigið plötusafn sem þið viljið gefa skal ég fús taka við því
  • Að partý Sússi sé maðurinn
  • Að Jóhanna mín sé vinnualki
  • Að það sé ekki hægt að spila Guitar Hero 3 nema í Easy
  • Það er heljarninar bras að setja upp gervihnattadisk
  • Vestmannaeyjar sé snilldarstaður og gott að vera á
  • Að síminn minn sé hársbreidd frá því að vera ónothæfur með öllu
  • að president lækni næstum alla kvilla ( nema hálsbólgu)
  • Að dexter séu bestu þættir sem gerðir hafa verið.. lost fylgir fast á eftir
  • Fernando Torres sé besti knattspyrnumaður í heimi
  • Að Gin og Tónik sé vökvi sálarinnar
  • að það sé ekkert spes að vera öryggisvörður í 10-11 við Austurstræti
  • að þarmaskegg sé aftur komið í tísku
  • Að south park hafi aldrei verið betri
  • Að sjónvarpsdagskráin á sunnudögum sem einn heljarinnar lolli.
  • Að kaffi sé ómissandi
Takk í bili
lofa öðru bloggi fljótt
27. apríl 2008 klukkan 13:52
Þorsteinn Mikael Gunnlaugsson
5 athugasemdir
13febrúar

Party at the white house

Mikil ósköp er Bush lúðalegur gaur.. Alveg snargallað eintak af mannveru.. Augljóst að George eldri og Barbara gamla ekki verið að vanda í verkið.. Gæti verið heimski gaurinn í hvaða bíómynd sem er.. besta sem hann hefur líklega gert var að veifa til Stevie Wonder.. hehe HANN ER BLINDUR BUSH

Rambo er kominn aftur og þótt fyrr hefði verið.. Hvað hann hefur verið að gera allan þennan tíma veit ég ekki en veit þó að hann hefur engu gleymt..  þegar ég var  barn  vissi maður  lítið en vissi þó að Rambo var svarið við heimsvandanum.. ég er sáttur með Stallone að reyna á þetta..

Doddi.bloggar púntur is var hársbreidd frá því að vinna titilinn besti afþreyingarvefurinn. Visir.is hafði þó betur á endanum.. Telja talsmenn doddi bloggar að brögð hafa verið í tafli..

Árshátíð Norvik verður haldin í höfðustað íslands um næstu helgi. Mikið verður um dýrðir. Hljómsveitin í svörtum fötum mun leika fyrir dansi og vona viðstaddir að söngvari hljómsveitarinar muni loks viðurkenna sínar langanir í karlmannshold.

Egils hafa verið margrómaðir á erlendri grund fyrir frábæran bjór.. Fór á Þorrablót fyrir stuttu hjá Byko og þar voru Egilsmenn með bjórkynningu.. sama hvað maður drakk af Egils premium þá batnaði bragðið ekki.. Mér finnst hann bara einfaldlega ekki góður.. Egils sterkur sleppur samt fyrir horn.. eftir að hafa gert netta könnun þekki ég ekki einn einasta mann sem hefur keypt egils bjór.. Merkilegt nokk

13. febrúar 2008 klukkan 23:08
Þorsteinn Mikael Gunnlaugsson
2 athugasemdir
29janúar

Vatnið er heitt.. því miður

komiði sæl og blessuð.. einhverjir smá byrjunarörðuleikar hérna megin á kantinum... meðan ég náði að koma með eina færslu inn á þessa síðu náði borgarstjórn Reykjavíkur að skipta tvisvar um stjórn... BBBAAAWWAAAMMM eða svo sem næst því kemst...  ætla ekki að að koma með neinar bombur um líðandi málefni en verð samt að nefna hinar frábæru auglýsingar sem geymslur auglýsa ágæti sitt með glæsibrag!! meira svona

Verð svo að biðja ykkur að tékka á þessu myndbandi!!! Stefni að því að ná hverrri einustu hreyfingu hjá þessum meistara uppá millimeter!!! Horfið samt á þetta með varúð... sumir hafa misst sig yfir þessu 
http://youtube.com/watch?v=in-KVSPnamI

Svo svona rétt í lokin þá verð ég að segja ykkur frá því að Jóhanna mín gaf kallinum sínum eitt stykki TROMMUSETT í jólagjöf..
VERY VERY NICE besta gjöf í heimi



29. janúar 2008 klukkan 20:22
Þorsteinn Mikael Gunnlaugsson
7 athugasemdir
14nóvember

ég kem alltaf aftur, aftur og aftur...

Herre Gud.. þá er enn ein síðan komin af stað.. Enn og aftur hef ég flutt mig um set og er nú komin í betri stofuna eins og fréttamannamáltækið hljómar eða í græna herbergið eins og tónlistamenn tala um en svona á mannamáli þá er ég komin á betri Vef- slóðir.. Hvað í ósköpum er durgurinn að spá nú? spurja kanski flestir sjálfan sig og ef ég á að segja eins og er hef ég ekki hugmynnd um það!!! en allavega þá er þessi síða kominn til að vera og mun vera mikil uppfærsla á henni... put my word on that.. og mun þessi síða vera mun menningarlegri en hinar áðurnefndu... ég mun fara í saumana á helstu skítamálum sem munu herja þjóðina hverju sinni.. vera með fræðsluhorn... og vonandi með tímanum..... föndurhorn.

Eins og þið vonandi sjáið hér fyrir ofan þá fann ég þessa fínu mynd af lukkulákannum í góðu jólaglensi með djammfélögunum og ef það kemur ykkur ekki í jólaskap þá neyðist þið til þess að bíða eftir því að jólaölið í 5 lítra brúsunum dettur á markaðinn og þá skuluð þið hlaupa af stað, grípa eintak og guffa því í ykkur og bamm jólaandinn dettur yfir ykkur.. í versta falli getið þið lent í því að grípa óvart eldgamlan brúsa sem er vel gerjaður en þá dettur líklega frekar vínandinn yfir ykkur.. það er svosem í lagi..

Cut the crap.. allt gott í fréttum... jólahlaðborð með byko á hótel kea á laugardaginn og ætlum við hjúin að kíkja á það.. síðasta helgi var snilldin ein... við kíktum í útflutningspartý til stjána og höllu og það var hörku stuð.. kíktum svo í sjallann á palla og það var einnig hörku stuð.. Stanslaust stuð semsagt... Sunnudagurinn fór svo bara í gott chill hjá okkur

nóg í bili..
14. nóvember 2007 klukkan 23:16
Þorsteinn Mikael Gunnlaugsson
9 athugasemdir

Aðalvalmynd

Könnun

Er satan meðal vor?

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Þorsteinn Mikael Gunnlaugsson
  • Staður: Akureyri
  • Hjúskaparstaða: Sambúð
  • Um mig: Kenndur við svarfaðardal. Nýskriðinn á malbikið, ekkert Kókópuffs takk.

photos please